Maður er eiginlega alveg hættur að blogga eftir að maður komst inn á þetta facebook dæmi.. eins og flestir sem maður þekkir.. Og ég sem ætlaði sko aldrei á facebook, en þá var ég heldur ekki búin að sjá hvað væri hægt að gera þarna inni, hélt að þetta væri eitthvað eins og myspace sem ég er að spá í að henda bara.. Annars er bara búið að vera fínt hjá mér.. byrjaði í ræktinni í febrúar og búin að vera þokkalega dugleg. Einnig splæsti ég í ljósakort í byjun mars sem ég er að verða búin með 
Við Palli kíktum í bústað í svignaskarði í tvo daga, sem Erlingur og Bjögga leigðu yfir páskana. Voðalega kósý.. fórum í heita pottinn, ég bakaði súkkulaði köku, við grilluðum og átum helling af súkkulaði og nammi! Erlingur keypti nefnilega risa-bónusegg sem var 1kg! Mér fannst reyndar súkkulaðið ekkert spes en nammið var æði..
Svo er bara stefnt á að halda sér við í ræktinni, kaupa kannski nýtt ljósakort rétt til að viðhalda lit, (ef ég finn faldan pening).. vinna og slappa svo af í sveitinni einhverjar helgar..
Mikið hlakka ég til sumarsins.. en ég spái einu hreti áður enn við fáum að njóta sumarsins almennilega.. vona að ég hafi samt rangt fyrir mér..
Bloggar | 17.4.2009 | 17:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
... ekki að það sé slæmt..
En ég pantaði mér dvd á amazon.co.uk síðast liðinn föstudag. En ég greiddi með vísa í plús, en hafði greinilega ekki sett nóg inn á kortið því ég fékk póst á mánudeginum um að greiðslan hafði ekki gengið í gegn. Ég kippti því strax í lag og fékk strax staðfestingu á greiðslunni. Svo var bara að bíða.. því það tekur 4-8 virka daga til og frá Bretlandi.. eða hvað?
Þegar ég fór á fætur í morgun var mér litið uppá skápinn á ganginum þar sem minn póstur er alltaf settur og viti menn.. þar var erlent bréf.. frá bretlandi.. merkt mér..
og það var myndin mín... jey!!!!!
Bloggar | 21.1.2009 | 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegs nýs árs og þakka það liðna.
Ég býst ekki við að vera neitt duglegri að blogga oftar í ár en ég var síðast liðið ár. En ég ætla að vera duglegri að blogg um eitthvað vert þess að blogga um, eða setja inn skrítlur eða myndir sem koma mér, og þá vonandi öðrum, til að hlægja.
Annars vorum við Palli í sveitinni um áramótin og sprengdum það litla sem við keyptum. Sem var samt mjög flott.. en ég veit að heima var keypt Bankaterta sem var víst alveg rosaleg.. hefði sko viljað sjá hana. Maður hefði keypt svoleiðis sjálfur hefði maður á pening fyrir henni.
En svo var það æðislegasta þetta dýrindis kvöld að við vorum bæði lasin, og urðum alltaf verri og verri þar til við gátum ekki platað okkur sjálf lengur. Það dugar bara ákveðið skammt að vera í afneitun þegar kemur að veikindum.. en sem betur fer var þetta svo fljótt að fara. Ég er að vísu enn að sjúga upp í nefið og hósta öðru hvoru.. en er samt bara mjög hress.
Svo var náttúrulega farið beint í vinnuna á föstudeginum, en sem betur fer var ekki eins mikið að gera og við bjuggumst við því við vorum mjög fáliðuð. Það voru ekkert ægilega skemmtileg símtöl sem við fengum, en við vorum allavega ekki að drukkna (Eins og í dag). En svo var kvöldið tekið með trompi: bíó á Yes Man með Birgittu, Erlingi og Bjöggu. Og að sjálfsögðu leiddi það af sér þvílíkan hálfvitagang.. Red-a Búll-ah!! Drukkum og fífluðumst fram eftir nóttu..
Laugardagskvöldið var ekki síðra. En það byrjaði með dýrindis máltíð á Greifanum í boði mömmu og Jonna, TAKK!
og var maður vel útblásinn eftir það svo það var gott að fara heim og liggja að eins á meltunni áður en við rukum út á lífið. Ferðinni var heitið á Dátann á tónleika, en þar voru að spila Akureyri, Disturbing Boner og Nevolution (reyndar eitt band í viðbót sem ég man ekki hvað heitir, en það er allt í lagi því það suckaði), það var slammað og misst sig í mos-pit. Svo fórum við á barinn og eyddum þar morðfjár
. En það var alveg þess virði, því ekki nóg með það að drykkurinn hafi verið ljúffengur heldur er svo gaman að sjá viðbrögðin hjá bæði barþjónum og öðrum viðskiptavinum þegar maður pantar "fimm-faldan Jäger í burn.. í stóru glasi takk" (Reyndar var það Palli sem pantaði, en viðbrögðin voru samt alveg jafn fyndin)... Ha? fimm-faldan [sínir töluna með hendinni]
... Já, fimm-faldan, staðfestum við svo bæði og sýndum líka töluna með hendinni
Hehehehe..
Svo hitti maður helling af fólki sem maður hefur ekki séð lengi.. og líka fólk sem er stutt síðan maður hitti en alltaf gaman að rekast á góða kunningja.
Látum þetta gott heita í bili.. en ég vil taka það fram að fyrirsögnin er tilvitnun í athugasemd Valeyjar Söru á síðasta blogg, án hennar hefði ég ekki bloggað í dag.. en það tók nú langan tíma.. ég byrjaði að skrifa um hádegi og er klukkan nú rúmlega hálf 6, enda er búið að vera brjálað að gera í vinnunni.. en þangað til næst:
Red-a Búll-ah!!!!!
Bloggar | 5.1.2009 | 17:36 (breytt kl. 17:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rosalega er orðið stutt í jólin.. bara 6 dagar. Og ég er EKKI búin að kaupa allar jólagjafirnar.. ég sem er yfirleitt búin að því fyrir 1 des eða í síðasta lagi í fyrstu vikunni í desember. Hvað er eiginlega að gerast? Og það sem meira er.. ég var að setja upp seríur og aðventuljós í gær, en ekki búin að skreyta alveg né þrífa alveg.. djöfull er ég eitthvað sein á því í ár.. tíminn líður svo hratt að ég hef ekki við.. en þrátt fyrir það þá er ég komin í rosalegt jólaskap, reyndar búin að vera í jólaskapi síðan í haust..
Þetta er svo í fyrsta sinn sem ég er að vinna eitthvað af viti um jólin, í fyrra var maður bara á einni og einni vakt í leikhúsinu.. núna er það bara non stop alveg fram að hádegi á aðfangadag. Er semsagt að vinna um helgina. En það þýðir bara eitt.. money money.. og ekki veitir af.
jæja.. þetta var stutt og laggott.. best að hafa það bara þannig..
Bloggar | 18.12.2008 | 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hæ hæ, Þar sem ég er alveg hrikalega léilegur bloggari ætla ég að setja hérna inn dálitla sögu sem ég fékk senda í tölvupósti í vinnunni.. 
Little Carol came into the kitchen where her mother was making dinner. Her
birthday was coming up and she thought this was a good time to tell her
mother what she wanted. "Mom, I want a bike for my birthday."
Now, little Carol was a bit of a troublemaker. She had gotten into trouble
at school and at home. Carol's mother asked her if she thought she deserved
to get a bike for her birthday. Little Carol, of course, thought she did.
Carol's mother, being a Christian woman, wanted her to reflect on her
behavior over the last year, and write a letter to God and tell him why she
deserved a bike for her birthday. Little Carol stomped up the steps to her
room and sat down to write God a letter.
LETTER 1:
Dear God:
I have been a very good girl this year and I would like a bike for my
Birthday. I want a red one.
Your friend, Carol
Carol knew this wasn't true. She had not been a very good girl this Year, so
she tore up the letter and started over.
LETTER 2:
Dear God:
This is your friend Carol. I have been a pretty good girl this year, and I
would like a red bike for my birthday.
Thank you,Carol
Carol knew this wasn't true either. She tore up the letter and started
Again.
LETTER 3:
Dear God:
I know I haven't been a good girl this year. I am very sorry. I will be A
good girl if you just send me a red bike for my birthday.
Thank you,Carol
Carol knew, even if it was true, this letter was not going to get her a
Bike. By now, she was very upset. She went downstairs and told her mother
she wanted to go to church. Carol's mother thought her plan had worked
Because Carol looked very sad. "Just be home in time for dinner," her Mother
said.
Carol walked down the street to the church and up to the altar. She Looked
around to see if anyone was there. She picked up a statue of the Virgin
Mary, slipped it under her jacket and ran out of the church, down The
street, into her house, and up to her room. She shut the door and sat down
and wrote her letter to God.
LETTER 4:
I GOT YOUR MAMA.
IF YOU WANT TO SEE HER AGAIN, SEND THE BIKE.
Signed,YOU KNOW WHO
Bloggar | 4.11.2008 | 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Of langt síðan ég hef bloggað.. þetta er nú varla blogg en skondin lesning samt sem áður..
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPÍTALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR ( Íslenska útrásin í hnotskurn )
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr.
Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr.
Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr.
Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI
Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun.
Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Bissnessinn gengur vel.
Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó a.m.k í lýðræðisríki núna...
Bloggar | 23.10.2008 | 14:24 (breytt kl. 14:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ekkert sérstaklega nákvæmt....
Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:
1. skúringar og umsjón með búri á dvalarheimilinu Hlíð
2. Afgreiða pantanir á norðlenska (kvöldvakt svo dagvakt)
3. Afgreiðsla í sjoppunni í LA
4. Þjónustufulltrúi Póstsins (er það núna)
Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:
1. Þingvallastræti 18
2. Þingvallastræti 18
3. Þingvallastræti 18
4. Þingvallastræti 18
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
1. The Fifth Element
2. From Dusk til Dawn
3. Pulp Fiction
4. Muppet Treasure Island
Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:
1. CSI
2. Top Gear
3. Simpsons
4. Futurama
Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
1. Allar Harry Potter bækurnar
2. Allar Harry Potter bækurnar
3. Allar Harry Potter bækurnar
4. Jennifer Government
Matur sem er í uppáhaldi:
1. Kjötbollur og kál a la Mútta
2. Íslenskt Lambalæri með sveppasósu..
3. heimagerð pizza (a la tengdó)
4. Svínahnakki, ýmist grillaður eða í raspi steiktur á pönnu
Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):
1. facebook.com (oft en ekki daglega samt)
2. google.com (oft en ekki daglega samt)
3. Lotgd.net (oft en ekki daglega samt)
4. Póstur.is (alla virka daga ;)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Reykjavík
2. Sveitin hans Palla (Merki í Fnjóskadal)
3. Þýskaland
4. Svíþjóð og Danmörk
Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
1. Heima
2. Í sveitinni
3. í einhverju landi sem ég hef aldrei komið í
4. tívolíinu í Köben
Fjórir bloggarar sem ég klukka:
1. Erlingur
2. Birgitta
3. Valey Sara
4. Kata
Bloggar | 10.9.2008 | 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég og Birgitta systir fórum í ræktina í gærkvöldi og skemmtum okkur vel. En svo kom að því að fara heim og viti menn ég labbaði fram á sokkunum.. djö.. ég gleymdi skónum! Ekki íþróttaskónum heldur útiskónum. Við létum hleypa mér aftur inn svo ég geti nú sótt þá.. En en en.. hvar eru þeir..? Ég setti þá bara á sama stað og vanalega, undir skápinn. Ég leit undir alla skápana og opnaði alla þá sem voru í kring um minn.. Ekkert! Ég fór þá bara aftur fram furðu lostin.. Birgitta, skórnir mínir eru horfnir! Gömlu ljótu slitnu adidas skórnir mínir sem ég fékk í 8. bekk.. bara horfnir.. 
Afgreiðslustúlkan kom þá og leitaði líka.. ekkert.. fór inn í geymslu þar sem tapað fundið og spyr.. Eru þeir hérna? Neibb.. ekki eru þeir þar.. En hver ætti svo sum að vilja stela þessum skóm? Hvað er málið?
Ég er hvort eð er búin að tala um það að kaupa mér nýja skó.. en þessir voru svo góðir.. og það er leiðinlegt að þurfa að splæsa í nýja skó út af þessu. En við ætlum aftur í ræktina á morgun.. ég ætla að vona að þeir hafi skilað sér þá.. Ég sakna gömlu skónna minna 
Bloggar | 5.9.2008 | 09:35 (breytt kl. 12:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það er nú dálítið síðan ég bloggaði síðast.. ekki það að ég hafi eitthvað merkilegt að segja núna heldur en áður. Ég og Palli erum ný skriðin úr tveggja vikna fríi og það er rosalega gott að vera komin aftur til vinnu.. maður verður hálf myglaður á því að gera ekki neitt of lengi.. Við vorum út í sveit alla síðustu viku og tókum Skelfingu með okkur.. en við erum enn ekki búin að finna heimili handa greyinu, og erum við pínu að gæla við þá hugmynd að eiga hana bara sjálf.. Það er svakalega notalegt að slaka á í sveitinni..
Að öðru....
Mér finnst æðislegt að íslendingar lentu í öðru sæti á ólympíuleikunum!! Bara frábært!! Ég horfði að vísu ekki á einn einasta leik, en ég fylgdist með hvar við sátum.. allavega svona rétt í lokin..
en þar sem ég hef ekkert að blogga um ætla ég að láta þetta gott heita í bili.. blogga næst þegar ég hef eitthvað af viti eða vitleysu að segja..
Bloggar | 25.8.2008 | 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég var að taka að mér litla 3 mánaða læðu sem ég fæ til mín í dag eftir vinnu. En ég get ekki átt hana sjálf og er því að leita að heimili fyrir hana. Ef einhver í Reykjavík hefur áhuga þá sleppur það alveg þar sem við Palli erum að spá í að fara suður helgina eftir Versló og gætum þá alveg tekið hana með okkur.
Mér skilst að hún hafi hlotið nafnið Skelfir og hlakka til að sjá hvernig það fer henni 
Öll hjálp er þegin svo þótt þið hafið engan áhuga þá megið þið alveg minnast á þessa kisu við vini og vandamenn svo hún fái gott heimili sem fyrst.
Takk fyrir að þola auglýsinguna þið sem tókuð tíma í að lesa hana..
Bloggar | 28.7.2008 | 10:19 (breytt kl. 11:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)

katana
rhea
zion
brylli
malacai
anna-panna
krossgata
sigurjon
skott
tharfagreinir